7 Febrúar 2017 15:56

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í liðinni viku vegna hinna ýmsu mála sem rötuðu inn á borð.  Skemmtanahald helgarinnar gekk með ágætum og engin alvarleg mál sem upp komu.

Ein líkamsárás var kærð til lögreglu í liðinni viku en þarna hafði orðið ósætti á milli tveggja manna á einu á öldurhúsum bæjarins sem endaði með því að annar sló hinn þannig að sá sem fyrir árásinni varð þurfti að leita til læknis.  Ekki er um alvarlega áverka að ræða.

Einn fékk að gista fangageymslur lögreglu í vikunni en hann hafði verið til óþurftar á einu af öldurhúsum bæjarins sökum ölvunar og fékk að sofa úr sér á lögreglustöðinni.

Alls liggja fyrir fjórar kærur vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna en um er að ræða vanrækslu á notkun öryggisbeltis í akstri, notkun farsíma við akstur og ólöglega lagningu ökutækis.