12 Mars 2018 15:44

Tvær líkamsárásir voru kærðar til lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar. Í öðru tilvikinu fékk sá sem varð fyrir árásinni skurð á augabrún og var árásaraðilinn handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.  Í hinu tilvikinu var um minniháttar áverka að ræða.  Bæði málin eru í rannsókn.

Þá var einn handtekinn aðfaranótt sunnudags vegna gruns um heimilisofbeldis og var honum sleppt að skýrslutöku lokinni.  Málið er í rannsókn.

Síðdegis á föstudaginn fór lögreglan í tvær húsleitir og fundust fíkniefni hjá tveimur aðilum við þá leit. Um er að ræða smáræði af maríhúana.  Málin eru í rannsókn.

10 kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum, einn vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna,  sjö ökumenn voru kærðir vegna ólöglegrar lagningar ökutækja, einn fyrir að nota ekki öryggisbelti í akstri og einn fyrir of hraðan akstur en hann mældist á 75 km/klst. á Hamarsvegi en þar er hámarkshraði 50 km/klst.