27 September 2016 12:26

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 80. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 74%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 51 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Nítján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.