18 Ágúst 2017 09:16

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í vesturátt, á móts við Garðaholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 82 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.