28 Mars 2017 09:11

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Arnarhrauni í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhraun í vesturátt, á móts við Arnarhraun 13. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 45 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 40 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Arnarhrauni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.