5 Desember 2017 17:46

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Fífuhvammsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 258 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.