26 Apríl 2017 14:45

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í austurátt, að Karlabraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 97 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 68 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.