16 Október 2017 09:07

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Borgarholtsbraut í Kópavogi á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgarholtsbraut í vesturátt, á móts við Borgarholtsbraut 50. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 70%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Borgarholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.