26 Apríl 2017 14:44

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í vesturátt, að Strandvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 199 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Borgavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.