31 Október 2017 10:50

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í austurátt, á móts við Grímsbæ. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 367 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á með hraðamælingunni stóð.