30 Mars 2015 18:09

Brot 639 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík frá þriðjudegi til miðvikudags í síðustu viku. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, á gatnamótum við Flugvallarveg. Á tæplega einum sólarhring fóru 8.631 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Níutíu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 104.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.