7 Desember 2016 17:19

Brot 58 ökumanna voru mynduð á Dalvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalveg í austurátt, á móts við Dalveg 30. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 327 ökutæki þessa akstursleið og ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Dalvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.