18 September 2017 16:02

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Elliðavatnsvegi í Garðabæ á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Elliðavatnsveg í suðurátt, á móts við Kjóavelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 95 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tíu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Elliðavatnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.