14 Nóvember 2017 17:08

Brot 95 ökumanna voru mynduð á Fífuhvammsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í vesturátt, að Hlíðardalsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 381 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, éljagangur og hálkuþekja var á með hraðamælingunni stóð.