30 Janúar 2015 14:04

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Fjarðarhrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjarðarhraun í norðurátt, við Stakkahraun. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 432 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108.

Vöktun lögreglunnar á Fjarðarhrauni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.