15 Júní 2017 12:27

Brot 186 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarnesveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 965 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 114.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.