9 Mars 2018 13:35

Brot 123 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, á móts við Fífuhvamm. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.015 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 114.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.