19 September 2017 17:58

Brot 68 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í suðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fór 671 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.