24 Apríl 2015 10:36

Brot 200 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, að Nauthólsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 846 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og átta óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.