7 Desember 2017 15:13

Brot 77 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Bústaðavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 683 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Átta óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að él og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.