21 Nóvember 2017 16:41

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, á móts við Kársnesbraut 19. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 192 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Kársnesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að sól og blautt var á með hraðamælingunni stóð.