24 Apríl 2015 10:35

Brot 157 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, við frárein að Bústaðavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 633 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.