31 Ágúst 2016 10:12

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Kristnibraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í austurátt, á móts við Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.