11 September 2017 10:08

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Kristnibraut í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í austurátt, á móts við Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.