27 Júlí 2015 11:09

Brot 69 ökumanna voru mynduð á Laugavegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugaveg í vesturátt, á móts við Laugaveg 170. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 317 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Átta óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Laugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.