19 Júlí 2016 15:52

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á móts við Rauðagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.558 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.