25 Ágúst 2016 15:42

Brot 21 ökumanns var myndað á Neshaga í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, að Hjarðarhaga (skammt frá Melaskóla). Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 97 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Neshaga er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.