18 Júlí 2016 17:03

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Njarðargötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í suðurátt, á móts við Íslenska erfðagreiningu . Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 187 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Njarðargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.