25 Júlí 2017 16:07

Brot 79 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Brunnhóla. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 536 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 108 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Tuttugu og níu óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 130.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.