27 Febrúar 2015 15:56

Brot 70 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í austurátt, í Hvassahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 379 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 106 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 126.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.