21 Júlí 2017 09:11

Brot 108 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á móts við Kirkjusand. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 601 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.