20 Nóvember 2017 16:38

Brot 138 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í suðurátt, á móts við Kleppsveg 78. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 761 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sautján óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að sól og þurrt var á með hraðamælingunni stóð.