28 Október 2016 16:18

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 78. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 81 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.