16 Nóvember 2017 10:07

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 287 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 115.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að skýjað og krapaþekja var á með hraðamælingunni stóð.