16 Mars 2018 10:13

Nokkrir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Sá sem hraðast ók var ökumaður um tvítugt sem mældist á 146 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Ökumannsins unga bíða 130.000 króna sekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og  þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af fjórum bifreiðum vegna vanrækslu varðandi skoðun eða tryggingar og einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur.