7 Mars 2017 10:21

 

Tíu ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 138 km. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Annar ökumaður mældist á 102 km. hraða, einnig á Reykjanesbraut, á kafla þar sem hámarkshraðinn er 70 km. á klukkustund. Þá voru fáeinir ökumenn staðnir að því að virða ekki stöðvunarskyldu og einn ók sviptur ökuréttindum.