26 Mars 2015 17:04

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í suðurátt, að Norðurbakka 19-25. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 123 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.