23 Ágúst 2017 09:03

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í suðurátt, við Norðurbakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 113 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.