13 Október 2016 15:20

Brot 123 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í Ártúnsbrekku í austurátt, við N1. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.363 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Þrettán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 113.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.