22 Maí 2017 11:16

Brot 193 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt, á móts við Vínlandsleið 2-4. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.353 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 106.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.