12 Júní 2017 10:36

Brot 176 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt, að Höfðabakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.354 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og sjö óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 127.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.