15 Janúar 2018 15:59

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Víkurvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Víkurveg í norðurátt, að Hallsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 194 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Víkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að snjóþekja og hálka var á meðan hraðamælingunni stóð.