15 Júní 2017 12:27

Brot 4 ökumanna voru mynduð í Arnarhöfða í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhöfða í norðurátt, við Fálkahöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 12 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Arnarhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.