22 Ágúst 2016 17:01

Brot 57 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í suðurátt, á móts við Hólabrekkuskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.