19 Apríl 2017 16:02

Brot 51 ökumanns var myndað í Austurbergi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í suðurátt, á móts við Hólabrekkuskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 134 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.