19 Apríl 2017 16:02

Brot 16 ökumanna voru mynduð í Bakkavör á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bakkavör í norðurátt, á móts við Bakkavör 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 56 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Bakkavör er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.