13 Október 2016 15:19

Brot 14 ökumanna voru mynduð í Eskihlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eskihlíð í austurátt, við Blönduhlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 51 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Eskihlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.