16 Maí 2017 16:03

Brot 30 ökumanna voru mynduð í Eskihlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eskihlíð í austurátt, á móts við Eskihlíð 18. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 68 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar í Eskihlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.