20 Apríl 2018 08:51

Brot 14 ökumanna voru mynduð í Eskihlíð í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eskihlíð í austurátt, á móts við Eskihlíð 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 79 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Eskihlíð er liður í umferðareftirliti hennar við eða í nágrenni grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.