24 Apríl 2018 17:11

Brot 14 ökumanna voru mynduð í Hraunbæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbæ í vesturátt, á móts við Hraunbæ 140. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 41 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Hraunbæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.